Hyski - cover

Hyski

Grimmsbræður

  • 29 januari 2022
  • 9788728038543
Wil ik lezen
  • Wil ik lezen
  • Aan het lezen
  • Gelezen
  • Verwijderen

Samenvatting:

Eftir að haninn og hænan höfðu farið á stúfana í hnetuleit og étið hvor sína fyllina af hnetum fóru þau að rífast um það hvernig þau ættu að komast heim. Þau voru pakksödd og nenntu ekki fyrir nokkra muni að ganga heim. Hananum tekst að snara önd fyrir öfurlítinn vagn sem hann hafði útbúið og þannig bruna þau af stað. Seint um kvöldið koma þau að gistihúsi og gestgjafinn samþykkir eftir töluverðar mótbárur að hleypa þeim inn. Það renna þó á hann tvær grímur þegar hann áttar sig á því hvernig í pottinn er búið.Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.

We gebruiken cookies om er zeker van te zijn dat je onze website zo goed mogelijk beleeft. Als je deze website blijft gebruiken gaan we ervan uit dat je dat goed vindt. Ok